|
Heimasíða Golfklúbbs Vestarr, stofnár 1995 |
|
15.11.2011 19:51AðalfundurAðalfundur golfklúbbsins Vestarr verður haldinn 29.nóv 2011 kl:18.00 í Sögumiðstöðinni. Dagskrá aðalfundar. 1. Kosning fundarstjóra. 2. Kosning fundarritara. 3. Skýrsla stjórnar um störf og framkvæmdir á liðnu starfsári. 4. Endurskoðaðir reikningar lagðir fram. 5. Umræður og atkvæðagreiðslur um skýrslu stjórnar og ársreikninga. 6. Framkomnar tillögur og fjárhagsáætlun. 7. Kosning formanns 8 Kosning ritara / gjaldkera 9. Kosning og /eða tilnefning í aðrar nefndir, sbr. 8.grein. 10. Kosnir 2 endurskoðendur og einn til vara. 11. Önnur mál. Reglugerðabreyting lögð fyrir aðalfund. Breyting á 6.grein. 6.grein Stjórn klúbbsins skipa: Formaður, ritari, gjaldkeri og formenn nefnda annarra en skemmtinefndar og kvennanefndar samanber grein 8 Skulu formaður, ritari og gjaldkeri kosnir skriflega á aðalfundi. Formaður til eins árs í senn en ritari og gjaldkeri til tveggja ára í senn. Stjórnarmenn má endurkjósa gefi þeir kost á sér. Tveim vikum fyrir aðalfund skal stjórn skipa 3 manna kjörnefnd. Einn nefndarmanna skal vera í stjórn. Kjörnefnd skal leita eftir framboðum til embætta sem kjósa skal í og sjá til þess að a.m.k. einn frambjóðandi sé til hvers þeirra. Stjórnin getur jafnframt falið kjörnefnd að leita eftir framboðum eða tillögum um skipan nefnda, sbr. 8.grein. Komi fram fleira en eitt framboð, fyrir eða á aðalfundi, um formennsku í nefndir skal kosið í þá nefnd á aðalfundi samhliða kosningu stjórnar. Skrifað af AMR |
Vafraðu umFlettingar í dag: 135 Gestir í dag: 39 Flettingar í gær: 344 Gestir í gær: 104 Samtals flettingar: 239727 Samtals gestir: 50573 Tölur uppfærðar: 23.2.2012 06:13:32 TenglarEldra efni
|