|
Heimasíða Golfklúbbs Vestarr, stofnár 1995 |
|
03.12.2011 15:30Aðalfundur Vestarr 29 nóv.Aðalfundur Vestarr var haldinn 29 nóv 2011. Þórður Magg var kosinn fundarstjóri. Fundarritari var kosin Anna María Reynisdóttir. Pétur las skýrslu stjórnar, fór yfir verkefni síðasta árs. Skýrsla stjórnar var samþykkt með lófaklappi. Endurskoðaðir reikningar lagðir fram. Þar var það helsta að klúbburinn er skuldlaus og hagnaður ársins var 2.191.621 kr. Hér er ársreikningurinn. Lögð var fram fjárhagsáætlun fyrir árið 2012. Voru reikningar og fjárhagsáætlanir samþykktar samhljóða. Lögð var fram breytingartillaga á reglum félagsins vegna kvennanefndar sem féll á jöfnu. Dagbjartur Harðarson var kjörinn nýr formaður klúbbsins. Ritari var kjörin Anna María Reynisdóttir. Gjaldkeri, Þórður Magnússon, á enn eitt ár eftir af sínu kjörtímabili. Formenn annarra nefnda voru kosnir svo: Ásgeir Ragnarsson formaður vallarnefndar Kjartan Sigurjóns formaður mótanefndar Systa Reynis formaður skálanefndar Bryndís Theodórs formaður kvennanefndar Pétur Georgsson formaður nýliðanefndar Guðni E Hallgrímsson formaður fjáröflunarnefndar. Endurskoðendur voru kosnir. Nýr formaður hélt tölu og þakkaði fráfarandi formanni, Pétri Georgssyni, fyrir góð störf. Engin önnur mál voru og fundið var slitið. Skrifað af Þórði Magg |
Vafraðu umFlettingar í dag: 135 Gestir í dag: 39 Flettingar í gær: 344 Gestir í gær: 104 Samtals flettingar: 239727 Samtals gestir: 50573 Tölur uppfærðar: 23.2.2012 06:13:32 TenglarEldra efni
|