|
Heimasíða Golfklúbbs Vestarr, stofnár 1995 |
|
07.01.2012 22:02AðalfundurAðalfundur Vestarr 29.nóvember 2011 Haldinn í Sögumiðstöðinni kl: 18.00. Dagskrá: 1. Kosning fundarstjóra 2. Kosning fundaritara 3. Skýrsla stjórnar og framkvæmdir á liðnu ári 4. Endurskoðaðir reikningar lagðir fram 5. Umræður og atkvæðagreiðsla um skýrslu stjórnar og ársreikninga 6. Framkomnar tillögur og fjárhagsáætlun 7. Kosning formanns 8. Kosning gjaldkera 9. Kosning og /eða tilnefning í aðrar nefndir, sbr. 8.grein. 10. Kosnir tveir endurskoðendur og einn til vara 11. Önnur mál 1. Fundarstjóri Þórður Magnússon 2. Fundaritar Anna María Reynisdóttir 3. Pétur gefur skýrslu stjórnar. Sumarið fór rólega af stað hjá okkur eins og öðrum klúbbum á landinu vegna kulda, mótum vara frestað og fáir nentu að spila golf af einhverju viti í maí og framan af júní. Mörg stór verkefni voru í gangi í sumar , Marteinn afrekaði mikið auk þess sem fjórir starfsmenn voru við vinnu á velli. Verkefni sem meðal annars voru unnin, klæðning á gámum fyrir settageymsla og vinnuskúr, nýtt æfingasvæði, breytingar á bílastæði, gróðursetning í stórum stíl, lenginging 2. Brautar og uppbyggingu á nýjum karlateig. Að auki var búið til framtíðarskipulag fyrir golfvöllinn. Stærsta málið í náinni framtíð er að það þarf að taka upp flatirnar, en fyrsti áfangi í því verkefni var unnin í sumar þar sem búinn var til grasbanki. Árangur í sveitakeppni GSÍ var frábær, bæði í golfi en ekki síður í framkvæmd, en klúbburinn hélt 5. Deild karla í sumar og allir þátttakendur voru alsælir með framkvæmd mótsins og ástand vallarins. Margir komu að þessu verkefni bæði sem keppendur og starfsmenn og er þeim þakkað hér með. Kvennaliðið mun leika í efstu deild að ári í fyrsta sinn þar sem spilað verður á 18. Holu velli Kjalar í Mosó. Karlasveitin fór líka upp um deild og mun spila í 4. deild í Hveragerði næsta sumar. Íslandsmót 35 ára og eldri var tekið með trompi af klúbbmeðlimum. Ágúst Jónsson vann sinn flokk og varð Íslandsmeistari í 4. flokki karla, Jón Björgvin Sigurðsson þriðji. Jón Kristbjörn Jónsson varð í 2. sæti í öðrum flokki karla og Anna María Reynisdóttir varð í 2. sæti í þriðja flokki kvenna. Fyrsta tilraun okkar til að halda bikarkeppni gekk mjög vel og vonandi er það mót komið til að vera. Mótadagskrá var annars með hefðbundnu sniði sem er frábært þar sem við héldum öllum stærstu styrktaraðilum mótanna. Vel gekk að safna styrkjum, en margir koma að því að safna fé fyrir klúbbinn. Klúbburinn er orðinn skuldlaus sem er með ólíkindum þar sem við höfum staðið í miklum framkvæmdum og fjárfestingum allt frá upphafi. Félagsmenn eru orðnir um 190, en í vor var undirritaður samstarfssamningur við golfklúbb starfsmannafélag Arion banka þar sem við fáum ákveðna þóknun fyrir það að halda utan um þeirra skráningu hjá golfsambandinu. Félagsmenn okkar eru um 100, einhver fækkun varð frá í fyrra í þeim hópi. 4. Endurskoðaðir reikningar. Þórður fer yfir reikninga og rekstur klúbbsins. Klúbburinn var rekinn með tæplega 2,2 miljóna hagnaði á þessu rekstrarári. Rekstrarútgjöld voru 7.875.305.- en rekstrartekjur voru 10.145.876.- . Klúbburinn á 18.801.510.- í eigið fé og er skuldlaus sem er alveg frábær árangur. Hægt er að skoða ársreikninga inná heimasíðu www.vestarr.net og eins að fylgjast með daglegu bókhaldi. 5. Skýrsla stjórnar samþykkt, ársreikningar samþykktir. 6. Þórður leggur fram fjárhagsáætlun næsta árs. Rekstartekjur eru áætlaðar 9.215.þús, rekstrargjöld áætluð 8.070.þús, hagnaður ársins áætlaður 1.145.þús. Áætlaðar fjárfestingar 1.100 þús. Fjárhagsáætlun samþykkt. Ein tillaga barst um breytingu á stjórn.Þar sem kvennanefnd færi út úr stjórn. Tillaga féll á jöfnu. 7. Formaður Dagbjartur Harðarson 8. Gjaldkeri Þórður Magnússon, ritari Anna María Reynisdóttir 9. Formenn nefnda kosnir Mótanefnd Kjartan Sigurjónsson Vallarnefnd Ásgeir Ragnarsson Unglinga og nýliðanefnd Pétur Vilberg Georgsson Skálanefnd Helga Ingibjörg Reynisdóttir (Systa ) Kvennanefnd Bryndís Theodórsdóttir Fjáröflunarnefnd Guðni E. Hallgrímsson 10. Endurskoðendur Deloitte hf. og G. Smári Guðmundsson, Freydís Bjarnadóttir til vara. 11. Önnur mál. Dagbjartur Harðarson nýr formaður þakkkar traustið og þakkar einnig fráfarandi formanni Pétir Vilberg fyrir gott starf. Fundi slitið kl: 19:20 Skrifað af AMR |
Vafraðu umFlettingar í dag: 135 Gestir í dag: 39 Flettingar í gær: 344 Gestir í gær: 104 Samtals flettingar: 239727 Samtals gestir: 50573 Tölur uppfærðar: 23.2.2012 06:13:32 TenglarEldra efni
|