30.08.2010 08:34
Sigursælar Vestarr konur.
Um helgina fóru 16 konur frá GVG á Vesturlandsmót kvk. sem haldið var í Borganesi. Sumar fóru á Laugardegi aðrar komu á Sunnudegi. Mótið fór fram á Sunnudeginum og var leikið í öllum gerðum af veðri sem kom sér vel þar sem við erum vanar ýmsum veðurbrigðum.Vestarr konur gerðu sér lítið fyrir og sópuðu til sín öllum verðlaunum.
Höggmeistari Vesturlands Hurgún Elísdóttir á 89 höggum.
Punkatmeistari Vesturlands Kolbrún Haraldsdóttir á 42 punktum.
Sveitakeppnina unnu Vestarr konur, í sveitinni eru
Kolbrún Haraldsdóttir 42 punktar
Kartrín Elísdóttir 41 punktur
Freydís Bjarnadóttir 36 punktar
Bryndís Theódórsdóttir 34 punktar.
Heim komum við sigursælar með styttuna góðu og fáum að geyma hana í ár.
Vestarr konur til hamingju með sigurinn.